Bára Hilmarsdóttir

Bráðabirgðamynd. Hér kemur ný mynd af Báru, mitti og upp, í rólegu ljósi (lárétt + lóðrétt útgáfa fyrir síma).

Bráðabirgðamynd. Hér kemur ný mynd af Báru, mitti og upp, í rólegu ljósi (lárétt + lóðrétt útgáfa fyrir síma).

Bára hjálpar fólki og fyrirtækjum að sjá stöðuna skýrar, treysta eigin innsæi og taka næsta skref af öryggi. Á mannamáli, án yfirlætis.

Skýr sýn fyrir stórar ákvarðanir.

Senda fyrirspurn

Innsæi og aðferð

Innsæi miðils og aðferðir ráðgjafa í sama tíma. Þú gengur út með skýra mynd af stöðunni og næstu skref.

Svona vinnur Bára
Kyrrt haf og fjarlæg strönd í þoku
Kyrrðin sem kemur þegar þokunni léttir.
Sólrík strönd og lítið þorp á Íslandi
Hendur um tebolla við kerti og minnisbók

Þjónusta

Það sem fólk segir

Úr umsögnum eftir vinnustofur og miðilsfundi Báru.

  • „Ég fékk greinargóð svör við spurningum og vangaveltum mínum. Orkan frá Báru er létt og þægileg. Góður húmoristi sem ég kann að meta. Ég mæli með að fólk kíki til hennar því það er gott og létt andrúmsloft hjá henni.“

    Ragnhildur Ó. · miðilsfundur

  • „Það er alltaf létt og gott andrúmsloft í kringum Báru. Hún er mjög góður kennari og leiðbeindi okkur á einfaldan og auðskilinn hátt. Ég mæli hiklaust með vinnustofunni, það sem Bára kennir er líka fyrir karlmenn!“

    Þorleifur P. · vinnustofa

  • „Hver tími hjálpaði mér bæði að hlusta og líka treysta mínu innsæi og Bára hafði einstakt lag á að setja þetta fram á einfaldan hátt þannig að allir gátu tengt. Það gerði hún með sinni einstöku hlýju og húmor.“

    Sólrún · framhaldsvinnustofa

  • „Virkilega áhrifamikil vinnustofa. Með opnum hug og hjarta fann ég mikinn mun á mér með hverjum tímanum sem leið. Ég ‚heyri‘ betur í innsæinu í dag en áður var. Orkan frá Báru er kraftmikil en samt um leið svo mjúk.“

    Linda Rós · vinnustofa

  • „Vinnustofan var ótrúlega skemmtileg og stóðst allar mínar væntingar. Mér verður alltaf svo andlega létt þegar ég er búin í tíma hjá henni.“

    Hulda · vinnustofa

  • „Það sem ég fékk var aukin orka, meiri og dýpri skilningur, vissa og meira traust á sjálfa mig. Orkan frá Báru er dásamleg og gefandi. Það er aldrei leiðinlegt nálægt Báru.“

    Imba F. · framhaldsvinnustofa

  • „Persónulega fékk ég ótrúlega mikið út úr vinnustofunni og finn ég stórkostlega breytingu á sjálfri mér. … Bára skapar svo skemmtilegt andrúmsloft en líka öruggt rými. … Það verður enginn svikinn að læra af Báru.“

    Rut Þ. · vinnustofa

  • „Mér fannst fundurinn góður. Hann gaf mér svar við minni spurningu. Þetta var minn fyrsti miðilsfundur og góð upplifun.“

    Sigurlin Margrét · miðilsfundur

  • „Það var virkilega skemmtilegt að læra nýjar leiðir til að tengjast. Yndislegt námskeið og ég mæli heilshugar með því.“

    Gígja E. · vinnustofa

Strönd og fjöll í gullnu ljósi

Viltu tíma hjá Báru?

Sendu stutta fyrirspurn. Bára les þær allar sjálf og hefur samband þegar tími losnar.

Senda fyrirspurn